fbpx

Fleiri mentorar Snjallræðis kynntir

Snjallræði kynnir fleiri mentora sem munu fylgja sprotunum í gegnum samfélagshraðalinn.

KLAK hefur tekið upp nýtt fyrirkomulag inni í Snjallræði, skipulag sem mun efla tengsl teymanna og mentora. Slíkt skipulag byggir á hugmyndafræði MIT Venture Management Service og hafa þau þróað þetta fyrirkomulag í yfir tvo áratugi en er nýtt hér á Íslandi.

Öflugt samfélag mentora sem hefur fylgt KLAK í hröðlum í gegnum árin mun veita teymunum mikilvæga ráðgjöf og gefa öll byr í seglin á meðan á Snjallræði stendur. Með nýja fyrirkomulaginu verða mentorahópar skipaðir sem samanstendur af þremur til fimm mentorum, hvert teymi fær úthlutað hóp sem fylgir þeim í gegnum hraðalinn. Hvert teymir hittir mentorahópinn sinn á 90 mínútna fundum fjórum sinnum yfir tímabilið eða einu sinni í mánuði. 

Mentorasamfélag KLAK samanstendur af reyndum einstaklingum úr atvinnulífinu sem hafa ríka skyldu til þess að gefa tilbaka, stuðla að nýsköpun og framþróun. 

19 mentorar Snjallræðis verða nú kynntir.