1707 ehf. (Flugstjóraaðferðin)

Foreldrar barna með taugaþroskavanda, eins og ADHD, einhverfu eða kvíða, bera ábyrgð á að upplýsa lækna og annað fagfólk um líðan og hegðun barnsins, hvort sem er heima, í skólanum eða í frístundastarfi. Upplýsingarnar berast úr mörgum áttum, í tölvupóstum, símtölum og minnispunktum, og það er mikil vinna fyrir foreldra að safna þeim saman fyrir hvern tíma. Flugstjóraaðferðin er aðferðafræði og notendavæn veflausn sem foreldrar og skóli nota til að eiga skýr, einföld og örugg samskipti um líðan og hegðun barnsins í skólanum. Kennarinn merkir líðan barnsins á nokkrum mínútum á dag og foreldrið stýrir aðganginum og ræður hver sér hvað. Heima fer barnið yfir daginn með foreldri og merkir sjálft hvernig því leið. Úr þessum daglegu samskiptum verða til tvenns konar verðmæti. Annars vegar safnast upp samfelld saga barnsins sem foreldrið getur fært lækni og öðru fagfólki sem skýrt yfirlit til að styðja við mat þeirra. Hins vegar lærir barnið, sem er flugstjórinn, að lesa mælana sína – grænt, gult, rautt og blátt – og að skilja eigin líðan betur. Að verkefninu standa hjónin Erna Kristjánsdóttir og Sigurjón Ingi Garðarsson í gegnum 1707 ehf. Þau eru sjálf foreldrar barns sem þarf aukinn stuðning. Prófanir í grunnskólum eru fyrirhugaðar vorið 2027.

1707 ehf. (Flugstjóraaðferðin) – KLAK Health 2026

Tengdir sprotar

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.