Mín Skimun er íslenskt heilsufarsapp hannað af konum, fyrir konur. Appið hjálpar notendum að fylgjast með brjósta- og leghálsskimun, reiknar út hvenær þær eiga að fara næst í skimun og minnir þær á mánaðarlegar sjálfsskoðanir á brjóstum með skref-fyrir-skref leiðbeiningum. Á Íslandi mætir næstum helmingur boðaðra kvenna ekki í brjóstaskimun á réttum tíma. Mín Skimun vill breyta því með því að gera skimunina aðgengilega, einfalda og alltaf við höndina.
Mín skimun
KLAK health er fimm vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja í heilsutækni, allt frá stafrænum heilsutæknilausnum yfir í lækningatækni, líftækni og lyfjaþróun.
Bakhjarlar KLAK health eru Landspítali, heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Securitas, Heilsuvernd, Lifa VC, Össur, Nox Medical, Frumtök og Lyfja.







