Dafna samanstendur af vinnustofum og mentoraþjónustu fyrir Sprota- og Vaxtarstyrkþega í samstarfi við Tækniþróunarsjóð.

Vinnustofur og mentoraþjónusta

Dafna er fjögurra mánaða vaxtarrými (e. incubator) sem KLAK rekur í samstarfi við Tækniþróunarsjóð. Vaxtarrýmið er ætlað frumkvöðlum sem hafa hlotið Sprota- eða Vaxtarstyrk frá sjóðnum.

Dagskráin samanstendur af gagnvirkum vinnustofum og sérhæfðri mentoraþjónustu KLAK VMS. Þátttakendur fá fræðslu um uppbyggingu sprotafyrirtækja og tengjast reyndum mentorum, sérfræðingum og fjárfestum, þar á meðal englafjárfestum og vísisjóðum.

Markmið Dafna er að styðja þátttakendur og auka líkur á velgengni sprotafyrirtækja þeirra.

Sótt er um styrki á vef Tækniþróunarsjóðs hér https://island.is/v/taeknithrounarsjodur

Fyrirkomulag

Teymi sem hljóta Sprota- eða Vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði fá boð um að taka þátt í Dafna. 

Hvenær er Dafna?

VorúthlutunHaustúthlutun
Ágúst – desemberFebrúar – júní

Hvernig virkar Dafna?

  • Vinnustofur
    Tveggja daga gagnvirkar vinnustofur í lok hvers mánaðar með fræðslu og verkfærum fyrir uppbyggingu sprotafyrirtækja.
  • Raunhæf verkefni
    Á milli vinnustofa vinna teymin hagnýt verkefni sem aðstoða þau við að ná framgangi
  • Mentorafundir
    Styrkþegar hitta sitt mentorateymi fjórum sinnum á tímabilinu, á 90 mínútna fundum. Nánari upplýsingar um mentorakerfi KLAK VMS má finna hér ( https://klak.is/vms/ )

Lokadagur

Allir Dafna hópar ljúka prógramminu með kynningum á verkefni sínu fyrir framan stjórn Tækniþróunarsjóðs, fjárfesta, hagaðila úr nýsköpunarumhverfinu og gesti. 

Um Dafna

Dafna hóf göngu sína árið 2021 sem tilraunaverkefni KLAK og Tækniþróunarsjóðs og var þá vikulangt prógram fyrir um 20 teymi sem höfðu hlotið Sprotastyrk frá sjóðnum. Teymin sóttu vinnusmiðjur meðal annars um viðskiptaáætlanir, markaðssetningu og vöruþróun. Hvert teymi fékk þá einn mentor og hitti hann tvisvar sinnum í 40 mínútur.

Fljótt kom í ljós að þörfin var meiri og tækifærin ótalmörg. Árið 2022 var Dafna opnað Vaxtarstyrkþegum líka og umfangið tvöfaldað. Vikulangt námskeið varð að fjögurra mánaða vaxtarrými. Einn mentor varð að heilu mentorateymi, skipulögðu í samstarfi við MIT Venture Mentoring Service.

Í dag nær Dafna til allt að 80 fyrirtækja á ári. Markmiðið er enn það sama og í upphafi: að gefa efnilegum sprotum gott veganesti og auka líkur á árangri þeirra.

Samstarfsaðilar

Sprotar

BioPol

Dafna 2026

Þróun á nýrri tegund ljóslífhvarfa (photobioreactor) tæktunarkerfis sem stefnir að því að umbylta þessu sviði.

biopol.is

Catecut

Dafna 2024, 2026

Catecut er B2B SaaS-lausn fyrir netverslanir með fatnað sem dregur úr áhættu tengdri kaupum og skilum, minnkar textílúrgang og skilar verulegum sparnaði fyrir tískuiðnaðinn.

catecut.com

Crow Outdoors

Dafna 2026

Crow Outdoors þróar Crow Camper – léttan, rafbílavænan og fjölskylduvænan ferðakerru sem endurskilgreinir útivistarferðir með snjallri hönnun, sjálfbærni og og framleiðslu sem hægt er að stækka á heimsvísu.

ELVA Golf

Dafna 2026

Nákvæm greining á hreyfingum mannslíkamans og golfkylfunnar með tölvusjón og gervigreind.

elvagolf.com

Euneo

Dafna 2024, 2026

Við viljum auka lífsgæði einstaklinga sem glíma við stoðkerfisvandamál með því að veita þeim aðgang að einstaklingsmiðaðri endurhæfingaráætlun og fræðslu unna af heilbrigðisstarfsmönnum. Snjallforritið okkar leiðir notendur í gegnum endurhæfingarferlið með því að hjálpa þeim að fylgjast með uppáskrifuðum æfingum og árangri og með því að veita þeim skýra og hnitmiðaða fræðslu um ástand sitt.

euneohealth.com

Fléttan Earth Observation

Dafna 2024, 2026

Fjarvinnandi, gervihnattadrifin umhverfisgreind sem skilar nothæfum niðurstöðum um jarðvegsrof og margþætta hættur á stórum skala.

flettan.com

Flow

Dafna 2026

Flow – hugleiðsla fyrir nútímalíf er gagnvirkur tæknivettvangur sem styður við hvernig við vinnum, lifum og náum bata í dag.

flow.is

Gagnvarmi

Dafna 2026

Nýting á afgangshita frá gagnaverum til að hita upp sjó fyrir landeldi á laxi.

GenePrint

Dafna 2026

Þróun á farsímaforriti sem getur greint sjaldgæfa erfðasjúkdóma út frá fingraförum.

Gleipnir Lífsmiðja

Dafna 2026

Yfir 80% þeirra próteina sem valda alvarlegum sjúkdómum, svo sem mörgum tegundum krabbameina og taugahrörnunarsjúkdóma, eru talin ólæknandi (e. undruggable) með hefðbundnum lyfjum. Gleipnir Lífsmiðja er líftæknifyrirtæki sem ræðst að þessum vanda með sínum einstaka SKÍRNIR skimunarvettvangi. Í stað þess að leita að lyfinu sjálfu notar SKÍRNIR hönnunarlíffræði (e. synthetic biology) í gerfrumum til að svara fyrstu og mikilvægustu spurningunni: Hvaða tvö prótein á að „líma“ saman til að gera sjúkdómspróteinið óvirkt?

Þessi nálgun breytir lyfjaleit úr dýrri og handahófskenndri leit í markvisst og kerfisbundið ferli. Hún sparar lyfjafyrirtækjum mikinn tíma í þróunarvinnu og dregur verulega úr áhættu og kostnaði. Markmið Gleipnis Lífsmiðju er að verða leiðandi alþjóðlegur samstarfsaðili í uppgötvun á nýjum meðferðum og flýta þannig fyrir þróun svokallaðra sameindalímslyfja (e. molecular glue drugs) gegn sjúkdómum sem hingað til hafa verið taldir ólæknandi.

Ísey Dísa Hávarsdóttir

Verkefnastjóri

VMS - Mentorar

Hildur Harðardóttir-Ráðgjöf,VERA; ex Sidekick, RÚV, FuturesCompany

Hildur Harðardóttir

Rebekka Kristín Garðarsdóttir-Forstöðukona Wise Akureyri, ex. LinkedIn Hong Kong

Rebekka Kristín Garðarsdóttir

Kormákur Hermannsson-VP of Supply Chain Operations

Kormákur Hlini Hermannsson

Fridthjofur Thorsteinsson-Founder Showdeck

Friðþjófur Þorsteinsson

Andrew Falconbridge-Ex ýmislegt hjá Alvotec

Andrew Falconbridge

davidgudjonsson

Davíð Guðjónsson

Magnús Halldórsson-Íslandsstofa, orku- og grænar lausnir

Magnús Halldórsson

Einar Geirsson-Chief Innovation Officer, Helix Health - Forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix Health

Einar Geirsson

Pétur J. Eiríksson-Ex. CMO Icelandair, CEO Icelandair Cargo, stj.form. Harpa

Pétur J. Eiríksson

Freyr Friðfinnsson-Verkefnisstjóri og alþjóðafulltrúi KLAK

Freyr Friðfinnsson

Berglind Rán Ólafsdóttir-Frkvstj. ORF líftækni

Berglind Rán Ólafsdóttir

Vallý Helgadóttir-COO Helix, Ex Controllant, Vistor

Vallý Helgadóttir

Sæmundur Valdimarsson-Ex sjóðsstjóri Kríu

Sæmundur Valdimarsson

Sæmundur K. Finnbogason-Ex sjóðsstjóri Kríu

Sæmundur K. Finnbogason

Sveinbjörn Ingi Grímsson-Ríkiskaup

Sveinbjörn Ingi Grímsson

Stefán Pétur Sólveigarson-Forstöðumaður Hraðsins, Húsavík

Stefán Pétur Sólveigarson

Sesselja Ómarsdóttir-Genís

Sesselja Ómarsdóttir

Ólöf Þórhallsdóttir-Ex Sales and Marketing Florealis, Actavis, núna hjá Lyfjastofnun

Ólöf Þórhallsdóttir

Michael Donovan-Co-CEO East Range Group, Harvard MBA

Mike Donovan

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir-Ex Oliver Wyman

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir

Kolbrún Eydís Ottósdóttir-Co-founder, Ch.Compliance officer Nox

Kolbrún Eydís Ottósdóttir

Jón Diðrik Jónsson-CEO Sena

Jón Diðrik Jónsson

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir-VP Sales & BD Europe, Keystroke

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir

Johann Gudbjargarson-Stofnandi PLAIO

Jóhann Guðbjargarson

Hulda Hallgrímsdóttir-CEO Nox, COO Sýn, Ex. VP Global Quality & Regulatory Össur

Hulda Hallgrímsdóttir

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.