Dafna samanstendur af vinnustofum og mentoraþjónustu fyrir Sprota- og Vaxtarstyrkþega í samstarfi við Tækniþróunarsjóð.

Vinnustofur og mentoraþjónusta

Dafna er fjögurra mánaða vaxtarrými (e. incubator) sem KLAK rekur í samstarfi við Tækniþróunarsjóð. Vaxtarrýmið er ætlað frumkvöðlum sem hafa hlotið Sprota- eða Vaxtarstyrk frá sjóðnum.

Dagskráin samanstendur af gagnvirkum vinnustofum og sérhæfðri mentoraþjónustu KLAK VMS. Þátttakendur fá fræðslu um uppbyggingu sprotafyrirtækja og tengjast reyndum mentorum, sérfræðingum og fjárfestum, þar á meðal englafjárfestum og vísisjóðum.

Markmið Dafna er að styðja þátttakendur og auka líkur á velgengni sprotafyrirtækja þeirra.

Sótt er um styrki á vef Tækniþróunarsjóðs hér https://island.is/v/taeknithrounarsjodur

Fyrirkomulag

Teymi sem hljóta Sprota- eða Vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði fá boð um að taka þátt í Dafna. 

Hvenær er Dafna?

VorúthlutunHaustúthlutun
Ágúst – desemberFebrúar – júní

Hvernig virkar Dafna?

  • Vinnustofur
    Tveggja daga gagnvirkar vinnustofur í lok hvers mánaðar með fræðslu og verkfærum fyrir uppbyggingu sprotafyrirtækja.
  • Raunhæf verkefni
    Á milli vinnustofa vinna teymin hagnýt verkefni sem aðstoða þau við að ná framgangi
  • Mentorafundir
    Styrkþegar hitta sitt mentorateymi fjórum sinnum á tímabilinu, á 90 mínútna fundum. Nánari upplýsingar um mentorakerfi KLAK VMS má finna hér ( https://klak.is/vms/ )

Lokadagur

Allir Dafna hópar ljúka prógramminu með kynningum á verkefni sínu fyrir framan stjórn Tækniþróunarsjóðs, fjárfesta, hagaðila úr nýsköpunarumhverfinu og gesti. 

Um Dafna

Dafna hóf göngu sína árið 2021 sem tilraunaverkefni KLAK og Tækniþróunarsjóðs og var þá vikulangt prógram fyrir um 20 teymi sem höfðu hlotið Sprotastyrk frá sjóðnum. Teymin sóttu vinnusmiðjur meðal annars um viðskiptaáætlanir, markaðssetningu og vöruþróun. Hvert teymi fékk þá einn mentor og hitti hann tvisvar sinnum í 40 mínútur.

Fljótt kom í ljós að þörfin var meiri og tækifærin ótalmörg. Árið 2022 var Dafna opnað Vaxtarstyrkþegum líka og umfangið tvöfaldað. Vikulangt námskeið varð að fjögurra mánaða vaxtarrými. Einn mentor varð að heilu mentorateymi, skipulögðu í samstarfi við MIT Venture Mentoring Service.

Í dag nær Dafna til allt að 80 fyrirtækja á ári. Markmiðið er enn það sama og í upphafi: að gefa efnilegum sprotum gott veganesti og auka líkur á árangri þeirra.

Samstarfsaðilar

Sprotar

LOVE Synthesizers

Dafna 2023, 2025, 2026

LOVE FM framleiðsluþróun.

lovesynthesizers.com

Marbot

Dafna 2024, 2026

Þróun sjálfflota (autobuoy) búnaðar sem heldur sökkvanlegum skelræktarlínum alltaf á réttu dýpi í sjónum.

Mekkino

Dafna 2023, 2024, 2026

Snjall hnéþjálfi til þjálfunar fyrir og eftir aðgerð á hné.

mekkino.is

NetRent

Dafna 2026

Nútímavæðing bílaleigugeirans með sjálfvirkum og gervigreindardrifnum ákvörðunum.

netrent.is

no.ID

Dafna 2026

gerir fólki kleift að sanna aldur sinn á netinu án þess að gefa upp hver það er – aldursstaðfesting sem byggist á dulkóðun fremur en eftirliti.

Norðurþari

Dafna 2026

Þróun frumgerðar til flokkunar á þangi og hagræðingar á gæðum afurða.

OpCo – fasteignafélag

Dafna 2026

Vettvangur fyrir sameiginlega fjárfestingu sem gerir fólki kleift að eiga hlut í íbúðarhúsnæði í stað þess að þurfa að kaupa heilt heimili.

fasteignafelagid.is

OptiDesign

Dafna 2026

OptiDesign er hönnunar aðstoð knúinn af gervigreind sem gerir arkitektum og verkfræðingum kleift að taka snjallari, umhverfisvænni og hraðari ákvarðanir í hönnun með því að sjálfkrafa búa til og meta þúsundir valkosta í byggingahönnun. Byggt til að tengjast beint við núverandi BIM-verkflæði eins og Revit og Speckle og fjarlægir ágiskun í upphafsstigi hönnunar með gagnadrifnum innsýnum í kostnað, kolefnislosun og orkunotkun—fært í fjárhagslegar tölur sem viðskiptavinir skilja auðveldlega.

Byggingariðnaðurinn ber ábyrgð á 37% af kolefnislosun heimsins, en sjálfbærni yfirsést oft vegna lélegrar upplýsingamiðlunar, takmarkaðar sjálfvirkni og þröngrar áherslu á upphafskostnað. OptiDesign bregst við þessum áskorunum með því að sameina sjálfvirka hönnun, lífsferilsgreiningu á kostnaði og sjálfbærnivísa í einni notendavænni lausn. Notendur geta skoðað yfir 1.000 valkosti fyrir hvert verkefni og sparað 11–35 klukkustundir á verkefni, auk þess að bæta bæði umhverfisleg og fjárhagsleg áhrif.

Verkefnið byggir á akademískri rannsókn og er þróað af sérfræðingum í sjálfbærni og stafrænum verkfræði. OptiDesign er í fararbroddi í þróun byggingariðnaðarins 4.0. Með nýjum reglum sem krefjast sjálfbærnimats og vaxandi eftirspurn eftir gervigreind í AEC-verkflæði, býður OptiDesign upp á forskot á ört vaxandi markaði sem metinn er á 23 milljarða Bandaríkjadala.

Hvort sem þú ert AEC-fyrirtæki sem leitast við að uppfylla ný umhverfisviðmið, viðskiptavinur sem leitar að hagkvæmum grænum lausnum, eða fjárfestir sem vill styðja framtíð sjálfbærrar hönnunar—OptiDesign er þar sem greind mætir áhrifum.

optidesign.io

Resea Energy

Dafna 2023, 2026

Við ræktum og vinnum íslenskan þara í verðmæt líförvandi efni og lífvirk innihaldsefni fyrir landbúnað, snyrtivörur og heilsutengda notkun, með áherslu á rekjanleika, sjálfbærni og vísindalega staðfestingu.

Robotix

Dafna 2026

Verkefnið þróar og sýnir sjálfvirkt viðgerðarkerfi á vettvangi, knúið gervigreind, fyrir "anode yokes" í álverum.

Ísey Dísa Hávarsdóttir

Verkefnastjóri

VMS - Mentorar

Hildur Harðardóttir-Ráðgjöf,VERA; ex Sidekick, RÚV, FuturesCompany

Hildur Harðardóttir

Rebekka Kristín Garðarsdóttir-Forstöðukona Wise Akureyri, ex. LinkedIn Hong Kong

Rebekka Kristín Garðarsdóttir

Kormákur Hermannsson-VP of Supply Chain Operations

Kormákur Hlini Hermannsson

Fridthjofur Thorsteinsson-Founder Showdeck

Friðþjófur Þorsteinsson

Andrew Falconbridge-Ex ýmislegt hjá Alvotec

Andrew Falconbridge

davidgudjonsson

Davíð Guðjónsson

Magnús Halldórsson-Íslandsstofa, orku- og grænar lausnir

Magnús Halldórsson

Einar Geirsson-Chief Innovation Officer, Helix Health - Forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix Health

Einar Geirsson

Pétur J. Eiríksson-Ex. CMO Icelandair, CEO Icelandair Cargo, stj.form. Harpa

Pétur J. Eiríksson

Freyr Friðfinnsson-Verkefnisstjóri og alþjóðafulltrúi KLAK

Freyr Friðfinnsson

Berglind Rán Ólafsdóttir-Frkvstj. ORF líftækni

Berglind Rán Ólafsdóttir

Vallý Helgadóttir-COO Helix, Ex Controllant, Vistor

Vallý Helgadóttir

Sæmundur Valdimarsson-Ex sjóðsstjóri Kríu

Sæmundur Valdimarsson

Sæmundur K. Finnbogason-Ex sjóðsstjóri Kríu

Sæmundur K. Finnbogason

Sveinbjörn Ingi Grímsson-Ríkiskaup

Sveinbjörn Ingi Grímsson

Stefán Pétur Sólveigarson-Forstöðumaður Hraðsins, Húsavík

Stefán Pétur Sólveigarson

Sesselja Ómarsdóttir-Genís

Sesselja Ómarsdóttir

Ólöf Þórhallsdóttir-Ex Sales and Marketing Florealis, Actavis, núna hjá Lyfjastofnun

Ólöf Þórhallsdóttir

Michael Donovan-Co-CEO East Range Group, Harvard MBA

Mike Donovan

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir-Ex Oliver Wyman

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir

Kolbrún Eydís Ottósdóttir-Co-founder, Ch.Compliance officer Nox

Kolbrún Eydís Ottósdóttir

Jón Diðrik Jónsson-CEO Sena

Jón Diðrik Jónsson

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir-VP Sales & BD Europe, Keystroke

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir

Johann Gudbjargarson-Stofnandi PLAIO

Jóhann Guðbjargarson

Hulda Hallgrímsdóttir-CEO Nox, COO Sýn, Ex. VP Global Quality & Regulatory Össur

Hulda Hallgrímsdóttir

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.