Dafna samanstendur af vinnustofum og mentoraþjónustu fyrir Sprota- og Vaxtarstyrkþega í samstarfi við Tækniþróunarsjóð.

Vinnustofur og mentoraþjónusta

Dafna er fjögurra mánaða vaxtarrými (e. incubator) sem KLAK rekur í samstarfi við Tækniþróunarsjóð. Vaxtarrýmið er ætlað frumkvöðlum sem hafa hlotið Sprota- eða Vaxtarstyrk frá sjóðnum.

Dagskráin samanstendur af gagnvirkum vinnustofum og sérhæfðri mentoraþjónustu KLAK VMS. Þátttakendur fá fræðslu um uppbyggingu sprotafyrirtækja og tengjast reyndum mentorum, sérfræðingum og fjárfestum, þar á meðal englafjárfestum og vísisjóðum.

Markmið Dafna er að styðja þátttakendur og auka líkur á velgengni sprotafyrirtækja þeirra.

Sótt er um styrki á vef Tækniþróunarsjóðs hér https://island.is/v/taeknithrounarsjodur

Fyrirkomulag

Teymi sem hljóta Sprota- eða Vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði fá boð um að taka þátt í Dafna. 

Hvenær er Dafna?

VorúthlutunHaustúthlutun
Ágúst – desemberFebrúar – júní

Hvernig virkar Dafna?

  • Vinnustofur
    Tveggja daga gagnvirkar vinnustofur í lok hvers mánaðar með fræðslu og verkfærum fyrir uppbyggingu sprotafyrirtækja.
  • Raunhæf verkefni
    Á milli vinnustofa vinna teymin hagnýt verkefni sem aðstoða þau við að ná framgangi
  • Mentorafundir
    Styrkþegar hitta sitt mentorateymi fjórum sinnum á tímabilinu, á 90 mínútna fundum. Nánari upplýsingar um mentorakerfi KLAK VMS má finna hér ( https://klak.is/vms/ )

Lokadagur

Allir Dafna hópar ljúka prógramminu með kynningum á verkefni sínu fyrir framan stjórn Tækniþróunarsjóðs, fjárfesta, hagaðila úr nýsköpunarumhverfinu og gesti. 

Um Dafna

Dafna hóf göngu sína árið 2021 sem tilraunaverkefni KLAK og Tækniþróunarsjóðs og var þá vikulangt prógram fyrir um 20 teymi sem höfðu hlotið Sprotastyrk frá sjóðnum. Teymin sóttu vinnusmiðjur meðal annars um viðskiptaáætlanir, markaðssetningu og vöruþróun. Hvert teymi fékk þá einn mentor og hitti hann tvisvar sinnum í 40 mínútur.

Fljótt kom í ljós að þörfin var meiri og tækifærin ótalmörg. Árið 2022 var Dafna opnað Vaxtarstyrkþegum líka og umfangið tvöfaldað. Vikulangt námskeið varð að fjögurra mánaða vaxtarrými. Einn mentor varð að heilu mentorateymi, skipulögðu í samstarfi við MIT Venture Mentoring Service.

Í dag nær Dafna til allt að 80 fyrirtækja á ári. Markmiðið er enn það sama og í upphafi: að gefa efnilegum sprotum gott veganesti og auka líkur á árangri þeirra.

Samstarfsaðilar

Sprotar

Hefring Marine

Dafna 2026

Hefring Marine byggir upp áreiðanlega sjótækni sem umbreytir gögnum um hegðun skipa í traustar leiðbeiningar í rauntíma fyrir öruggari og snjallari rekstur á sjó.

hefringmarine.com

Hvað nú?

Dafna 2026

Hvað nú? gerir dánarumsýslu (e. death administration) einfaldari í kjölfar ástvinamissis.

hvadnu.is

Innovation Train

Dafna 2026

Hjálpar stjórnendum að byggja upp fyrirsjáanlegt og stigvaxandi nýsköpunarkerfi með því að greina flöskuhálsa og styrkja þær aðstæður sem stuðla að nýsköpun.

innovationtrain.com

Ísponica

Dafna 2026

Samþætt varaaflslausn fyrir vökvatengda matvælaframleiðslu.

isponica.is

Ístækni – Arctic Astaxanthin

Dafna 2026

Framleiðsla búnaðar til vinnslu á astaxanthin úr rækjuskel.

KatlaCode

Dafna 2026

Gervigreindarstuðningur við útskrift sjúklinga fyrir lækna.

katlacode.ai

Kennitalan

Dafna 2026

Gervigreindardrifið markaðstorg sem einfaldar stofnun, kaup og sölu fyrirtækja fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki með því að samþætta opinber skráningargögn, verðmatslíkön og leiðbeiningarferla á einum stafrænum vettvangi.

kennitalan.is/is/companies

Kiso

Dafna 2026

Greiningarbúnaður fyrir hreyfingu manna – fyrir íþróttir og almenna endurhæfingu.

kisoinc.com/is

Leo app

Dafna 2026

Gervigreindardrifið farsímaforrit fyrir börn með málþroskaröskun og tengda samskiptaörðugleika, þar á meðal þá sem tengjast einhverfu.

ogma.is

Lífloft

Dafna 2026

Umhverfisvæn framleiðsla koltvísýrings fyrir gróðurhús.

Ísey Dísa Hávarsdóttir

Verkefnastjóri

VMS - Mentorar

Hildur Harðardóttir-Ráðgjöf,VERA; ex Sidekick, RÚV, FuturesCompany

Hildur Harðardóttir

Rebekka Kristín Garðarsdóttir-Forstöðukona Wise Akureyri, ex. LinkedIn Hong Kong

Rebekka Kristín Garðarsdóttir

Kormákur Hermannsson-VP of Supply Chain Operations

Kormákur Hlini Hermannsson

Fridthjofur Thorsteinsson-Founder Showdeck

Friðþjófur Þorsteinsson

Andrew Falconbridge-Ex ýmislegt hjá Alvotec

Andrew Falconbridge

davidgudjonsson

Davíð Guðjónsson

Magnús Halldórsson-Íslandsstofa, orku- og grænar lausnir

Magnús Halldórsson

Einar Geirsson-Chief Innovation Officer, Helix Health - Forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix Health

Einar Geirsson

Pétur J. Eiríksson-Ex. CMO Icelandair, CEO Icelandair Cargo, stj.form. Harpa

Pétur J. Eiríksson

Freyr Friðfinnsson-Verkefnisstjóri og alþjóðafulltrúi KLAK

Freyr Friðfinnsson

Berglind Rán Ólafsdóttir-Frkvstj. ORF líftækni

Berglind Rán Ólafsdóttir

Vallý Helgadóttir-COO Helix, Ex Controllant, Vistor

Vallý Helgadóttir

Sæmundur Valdimarsson-Ex sjóðsstjóri Kríu

Sæmundur Valdimarsson

Sæmundur K. Finnbogason-Ex sjóðsstjóri Kríu

Sæmundur K. Finnbogason

Sveinbjörn Ingi Grímsson-Ríkiskaup

Sveinbjörn Ingi Grímsson

Stefán Pétur Sólveigarson-Forstöðumaður Hraðsins, Húsavík

Stefán Pétur Sólveigarson

Sesselja Ómarsdóttir-Genís

Sesselja Ómarsdóttir

Ólöf Þórhallsdóttir-Ex Sales and Marketing Florealis, Actavis, núna hjá Lyfjastofnun

Ólöf Þórhallsdóttir

Michael Donovan-Co-CEO East Range Group, Harvard MBA

Mike Donovan

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir-Ex Oliver Wyman

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir

Kolbrún Eydís Ottósdóttir-Co-founder, Ch.Compliance officer Nox

Kolbrún Eydís Ottósdóttir

Jón Diðrik Jónsson-CEO Sena

Jón Diðrik Jónsson

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir-VP Sales & BD Europe, Keystroke

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir

Johann Gudbjargarson-Stofnandi PLAIO

Jóhann Guðbjargarson

Hulda Hallgrímsdóttir-CEO Nox, COO Sýn, Ex. VP Global Quality & Regulatory Össur

Hulda Hallgrímsdóttir

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.