
KLAK – Icelandic Startups og Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd HR kynna vísindaferð Gulleggsins!
Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni landsins, verður kynnt ásamt því að spennandi fyrirtæki verða á svæðinu að bjóða upp á spjall.
Vísindaferðin er opin öllum háskólanemum og verða drykkir í boði frá CCEP á meðan birgðir endast.
Engir aðrir en NussuN og Hugo munu koma fram og halda uppi stemningunni í vísindaferðinni.
Staðsetning: Gróska
Dagsetning: 18. október
Tími: 17:00 – 20:00