Skemmtikrafturinn og þúsundþjalasmiðurinn Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, jós úr brunni visku sinnar á gleðistund (e. happy hour) Klak – Icelandic Startups í Grósku. Dóri ræddi meðal annars um áskoranir samfélagsins á léttu nótunum og bauð svo upp á náttúruvín sem hann flytur inn.
Tilefni gleðistundarinnar er Snjallræði, nýsköpunarverkefni fyrir sporta sem vilja gera heiminn aðeins betri eða með öðrum orðum, samfélagshraðli þar sem samfélagsleg nýsköpun er í forgrunni.
Samfélagsleg nýsköpun felst í því að nýta aðferðafræði nýsköpunar og hönnunarhugsun til þess að tækla samfélagslegar áskoranir og byggja upp kerfi og lausnir sem fela í sér ávinning fyrir fólk og umhverfi og þar af leiðandi fyrir samfélagið í heild.
Frétt birtist í Smartlandi/mbl.is 10. ágúst 2022